Einar Stefánsson er 18 ára gamall Akureyringur sem stundar snjóbrettanám í menntaskóla í Malung í Svíþjóð. Þar fer fram hefðbundið bóklegt nám á haustin og á vorin en þegar veturinn gengur í garð gera nemendurnir fátt annað en að renna sér niður fjallshlíðar.
„Þetta er venjulegur menntaskóli. Á haustin og á vorin erum við í skólanum fimm daga í viku. Og núna á veturna eru bara tveir dagar í skólanum og síðan erum við þrjá daga uppi í fjalli með þjálfaranum allan daginn,“ segir Einar og bætir við að sér gangi vel.
Að jafna sig eftir rifbeinsbrot
Hann er hálfnaður með þriggja ára nám og hefur sett stefnuna á atvinnumennsku. Um þarnæstu helgi mun Einar taka þátt í stóru snjóbrettamóti sem fram fer í Slóvakíu. Einar setur markið hátt þrátt fyrir að hafa rifbeinsbrotnað þegar hann var að keppa í úrslitum á sænsku pallamóti fyrir um mánuði síðan, en Einar lenti illa eftir stökk.
„Ég er búinn að vera að taka því mjög rólega. Ég er samt eiginlega hættur að finna alveg fyrir rifbeininu þegar ég er að stökkva,“ segir Einar. „Ég komst allavega í úrslitin.“ Aðspurður segir hann snjóbrettasportið ekki vera neitt hættulegra en aðrar íþróttir.
Spurður út í mótið í Slóvakíu segir Einar að það sé frekar stórt.
„Þetta er í TTR snjóbrettakeppnislínunni og þetta eru fjórar af sex stjörnum í stærð,“ segir Einar. Hann segir að TTR sé mótaröð þar sem keppt er á snjóbrettum um allan heim. Aðspurður segist Einar búast við að sjá þekkt nöfn úr íþróttinni á mótinu.
Einar kveðst vera fullur tilhlökkunar og sjálfstrausts og er markmiðið fyrst og fremst að hafa gaman af þessu og gera sitt besta. Þá þarf Einar ekki að hafa neinar áhyggjur af því að vera ekki með rétta útbúnaðinn því styrktaraðilar sjá alfarið um að útvega honum allar snjóbrettanauðsynjar, hvort sem um er að ræða fatnað eða snjóbretti.
Sér ekki eftir að hafa sótt um
Aðspurður segist Einar vera góður í að renna sér eftir handriðum. „Mér finnst það skemmtilegast og hef eiginlega alltaf verið í því. Síðan eftir að ég kom til Svíþjóðar þá er svo mikið af pöllum, þannig að maður æft sig voðalega mikið á því líka.“
Einar, sem hefur rennt sér á bretti frá því hann man eftir sér, er eini Íslendingurinn sem stundar nám við skólann um þessar mundir. Hann er hins vegar ekki sá fyrsti. Hann komst í kynni við námið í gegnum aðra íslenska brettakappa, m.a. bræðurna Halldór og Eirík Helgasyni og Guðlaug Guðmundsson sem lögðu einnig stund á brettafræðin í Malung.
Einar segir að aðstaðan í skólanum sé í alla staði til fyrirmyndar. „Mig langaði til að prófa að sækja um og prófa þetta. Ég sé ekki eftir því.“




