Tvær kraftmiklar bílasprengjur sprungu í Aleppo, næststærstu borg Sýrlands, í dag. Í ríkisfjölmiðlum í Sýrlandi kom fram að 25 hefðu látist í sprengingunum og 175 særst. Fram kom að fyrri sprengingin hefði verið sjálfsmorðsárás á lögreglustöð. Síðari sprengingin hefði verið fyrir framan herstöð.
Stjórnarandstæðingar héldu því hins vegar fram að í raun væru stjórnvöld að baki árásunum.
Umfjöllun í ríkissjónvarpi Sýrlands fylgdi myndskeið frá vettvangi árásanna þar sem fjöldi látinna fórnarlamba lá í blóðpolli og sjúkraliðar héldu á líkamspörtum. Í ríkissjónvarpinu kom jafnframt fram að hermenn hefðu fallið í árásinni sem „vopnaðir hryðjuverkamenn“ hefðu framið.
Tiltölulega lítið hefur verið um óeirðir í Aleppo síðan uppreisn gegn stjórnvöldum í Sýrlandi hófst í mars síðastliðnum. Talið er að um 7.000 óbreyttir borgarar hafi fallið síðan óeirðirnar hófust.
Sprengingarnar í dag voru þær verstu síðan tvær sjálfsmorðsárásir voru framdar í Damaskus; sú fyrri var gerð í desember og kostaði 44 lífið en 26 létu lífið í þeirri síðari í janúar.




