Lagerbäck: Vildi taka þessa áhættu

ÍÞRÓTTIR  | 10. febrúar | 14:55 
Lars Lagerbäck byrjar ferilinn sem landsliðsþjálfari Íslands í knattspyrnu á því að leika við fjórar mjög öflugar þjóðir, Japan og Svartfjallaland í lok febrúar og Frakkland og Svíþjóð í lok maí.

Lars Lagerbäck byrjar ferilinn sem landsliðsþjálfari Íslands í knattspyrnu á því að leika við fjórar mjög öflugar þjóðir, Japan og Svartfjallaland í lok febrúar og Frakkland og Svíþjóð í lok maí.

Lagerbäck sagði við mbl.is þegar hann tilkynnti landsliðshópa sína í dag að hann væri mjög ánægður með að hafa fengið þessa öflugu mótherja. Það væri vissulega ekki gott að tapa mörgum leikjum, og sú áhætta  væri tekin með þessu, en hann kvaðst frekar vilja taka þá áhættu. Besta leiðin til framfara og þróunar liðsins væri að spila við sem sterkasta mótherja.

Hann fer með frekar reynslulítið lið til Japan þar sem leikið  verður við heimamenn sem væntanlega verða með sitt besta lið, enda að búa sig undir Asíukeppnina. Lagerbäck sagði að það yrði mikil áskorun, ekki bara gegn sterku liði heldur væri ferðalagið langt. Hinsvegar væri þetta mjög áhugavert verkefni og gott fyrir sig að sjá hvernig leikmenn höndluðu slíkan leik og ferðalagið.

Lagerbäck vonast eftir mörgu útúr fyrstu tveimur leikjunum við Japan og Svartfjallaland. Hann sagði að úrslitin væru mikilvæg, menn vildu alltaf vinna fótboltaleiki þó um vináttuleiki  væri að ræða. Nú væri líka afar mikilvægt fyrir sig að hitta leikmennina og tala við þá. Hann hefði séð til þeirra flestra eða allra í sjónvarpi eða á myndböndum en nú fengi hann tækifæri til að kynnast þeim í eigin persónu.

Eins og áður hefur komið fram fer hann með tvo mismunandi leikmannahópa í landsleikina tvo í lok febrúar. Leikurinn við Japan 24. febrúar er ekki á alþjóðlegum leikdegi og þar notar hann leikmenn af Norðurlöndum, þá sem voru hjá honum í æfingabúðum í janúar. Í leiknum gegn Svartfjallalandi spila þeir sem ekki voru lausir frá liðum sínum í Evrópu á þeim tíma.

Landsliðshóparnir hjá Lars Lagerbäck.