Martröð í matarboði

INNLENT  | 10. febrúar | 17:20 
Myndin Takk fyrir mig er fimmta myndin sem MBL Sjónvarp sýnir í samvinnu við Kvikmyndaskóla Íslands. Myndin fjallar um matarboð sem virðist ætla að ganga vel þar til einn gestanna uppgötvar skuggahliðar gestgjafans.

Myndin er útskriftarverkefni Kristínar Leu Sigríðardóttur og Önnu Hafþórsdóttur sem útskrifuðust af leiklistardeild vorið 2011. Þær stöllur leika einnig aðalhlutverkin í myndinni en auk þeirra fer Þór Tulinius með stórt hlutverk.