Harry prins kominn með þyrlupróf

FÓLKIÐ  | 10. febrúar | 17:25 
Harry Bretaprins er nú kominn með próf til að fljúga Apache-þyrlum breska hersins og heimsótti í dag herstöð á Suðaustur-Englandi.

Harry Bretaprins er nú kominn með próf til að fljúga Apache-þyrlum breska hersins og heimsótti í dag herstöð á Suðaustur-Englandi.

Konungsfjölskyldan hefur því eignast þyrluflugstjóra. Hann hefur nú lokið 16 mánaða þjálfun sinni til að mega fljúga Apache-þyrlu en hluti námsins fór fram í Bandaríkjunum.

Harry spjallaði við hermennina í herstöðinni og veitti viðurkenningar fyrir vel unnin störf. Þá hitti hann einnig fjölskyldur hermannanna.

Harry er þó ekki alveg útskrifaður, hann á enn eftir hluta herþjálfunar sinnar áður en hann getur tekið þátt í hernaðaraðgerðum á vegum breska hersins.