Gríska samsteypustjórnin samþykkti í kvöld samhljóða að fallast á þau skilyrði sem gerð eru til þess að greitt verði til Grikklands 130 milljarða evra neyðarlán. Talið er að gríska þingið muni greiða atkvæði um sömu skilyrði, niðurskurð og aðhald, á morgun.
Samþykkt flokksformanna í ríkisstjórn landsins um ráðstafanir í ríkisfjármálum er að kröfu Evrópusambandsins og Alþjóðagjaldeyrissjóðsins vegna björgunarpakkans svokallaða. Er það gert í skugga tveggja daga verkfalls í landinu og mikilla óeirða. Mikil reiði ríkir í samfélaginu vegna ákvörðunar stjórnvalda að láta undan þrýstingi ráðherra í evruríkjunum og leggja blessun sína yfir frekari aðhaldsaðgerðir.




