Ofbeldið í Sýrlandi eykst

ERLENT  | 10. febrúar | 20:25 
Að minnsta kosti 28 létu lífið og 235 særðust þegar tvær bílsprengjur sprungu í borginni Aleppo í Sýrlandi í gær. Meðal hinna látnu voru börn. Skriðdrekar, búnir þungvopnum, óku inn í borgina Homs.

Að minnsta kosti 28 létu lífið og 235 særðust þegar tvær bílsprengjur sprungu í borginni Aleppo í Sýrlandi í gær. Meðal hinna látnu voru börn. Skriðdrekar, búnir þungvopnum, óku inn í borgina Homs. Stjórnarandstæðingar segja ríkisstjórn landsins hafa skipulagt árásirnar í Aleppo til að beina athygli fólks frá voðaverkunum í Homs.

Margir Sýrlendingar eru Rússum ævareiðir fyrir að hafa beitt neitunarvaldi sínu í Öryggisráði Sameinuðu þjóðanna fyrir viku,  þegar tekin var fyrir ályktun um að fordæma ofbeldi ríkisstjórnar Assads Sýrlandsforseta gegn almenningi í landinu.

Sýrlenska ríkissjónvarpið sagði sprengingarnar í Aleppo vera verknað vopnaðra hryðjuverkahópa. Það sýndi upptökur frá Aleppo, þar sem verið var að bera ýmsa líkamshluta af vettvangi, þar á meðal hendur, fætur og búk. Frelsisher Sýrlands segir að ríkisstjórn landsins beri ábyrgð á árásunum.

Ban Ki-moon fordæmir árásirnar

„Þessi glæpsamlega ríkisstjórn sprengir sprengjur í Aleppo í þeim tilgangi að beina athyglinni frá því sem hún aðhefst í Homs,  Zabadani og á fleiri stöðum,“ sagði talsmaður frelsishersins,  Maher Nouaimi, við  AFP-fréttastofuna.

Ban Ki-moon, aðalritari Sameinuðu þjóðanna, lýsti því yfir að hann fordæmdi sprengingarnar í Aleppo. Hann vottaði aðstandendum þeirra sem létust samúð sína og sagði að ofbeldi væri óviðunandi, sama hvor aðilinn ætti í hlut.

Í bréfi, sem ríkisstjórn Sýrlands sendi Öryggisráði Sameinuðu þjóðanna, segir að voðaverkin í Aleppo séu algerlega á ábyrgð hryðjuverkamanna, sem njóti stuðnings Arababandalagsins og vestrænna þjóða.

„Tilteknar þjóðir í þessum heimshluta standa á bak við áróðursherferð gegn Sýrlandi og styðja hryðjuverkamenn undir yfirskini mannúðar,“ segir í bréfinu.

Gengu hús úr húsi

Skriðdrekar óku inn í Inshaat-hverfið í borginni Homs í nótt og hermenn gengu hús úr húsi til að leita stjórnarandstæðinga. Þetta segir talsmaður sýrlenskra mannréttindasamtaka. Inshaat hverfið er við hliðina á Baba Amr-hverfinu, sem hefur orðið afar illa úti undanfarna daga, en yfir 450 manns hafa látist í mótmælum og árásum stjórnarhersins undanfarna viku.

Auk þessa segja mannréttindasamtök að 44 hafi látist í átökum víða um landið, þar af 28 óbreyttir borgarar. Öryggissveitir skutu á fólk, sem var að koma frá bænahaldi í moskum sínum, til að hindra að það tæki þátt í mótmælum gegn Rússlandi. Lítið varð því úr mótmælum í gær.

Alþjóðasamfélagið verði að sameinast

Catherine Ashton, utanríkismálaráðherra ESB, segir að alþjóðasamfélagið verði að sameinast gegn ofbeldinu í Sýrlandi og krefjast þess að Assad víki úr forsetastóli. Mannréttindaskrifstofa Sameinuðu þjóðanna í Genf segir að þeir yfirmenn í sýrlenska hernum, sem hafa fyrirskipað árásirnar, eigi að vera kærðir fyrir glæpi gegn mannkyni.