Alþjóðlega geimstöðin náði nýverið mögnuðum myndum af norðurljósum á fleygiferð yfir jörðinni. Norðurljós sjást allt frá Mexíkó til Kanada í janúar.
Geimfarar um borð í geimstöðinni náðu norðurljósunum bæði á kvikmynd og ljósmyndir og nú hafa tæknimenn hjá NASA á jörðu niðri sett saman myndskeið sem sýnir þessi fallegu, rafmögnuðu ljós frá mjög óvenjulegu sjónarhorni: Utan úr geimnum.
Svokallaður sólvindur er straumur hlaðinna agna frá sólinni. Þegar þessar agnir nálgast jörðina fara margar þeirra að hringsóla í segulsviði jarðarinnar og ferðast jafnframt milli segulskautanna tveggja. Þegar þær rekast á lofthjúpinn í grennd við segulskautin verða norðurljósin og suðurljósin til, segir í svari á Vísindaefnum um tilurð norðurljósanna.




