Ekkert lát er á frosti og snjókomu á meginlandi Evrópu og liggur nýfallin mjöll eins og hvítt teppi yfir Rómarborg, en það mun afar fátíð sjón.
Snjó hefur kyngt niður í Rúmeníu með þeim afleiðingum að vegir eru víða lokaðir og fólk er lokað inni á heimilum sínum. Víða er jörð snæviþakin á Ítalíu, þar voru allir skólar lokaðir í gær og í dag og hefur innanríkisráðherra landsins varað fólk við því að vera á ferli, nema nauðsyn beri til.




