Þúsundir Írana fagna nú 33 ára afmæli íslamsbyltingarinnar í landinu, en hún var gerð árið 1979. Fólkið veifaði fánum landsins og hampaði stórum myndum af leiðtoga byltingarinnar, Ayatollah Ruhollah Khomeini og arftaka hans Ayatollah Ali Khamenei.
Mahmoud Ahmadinejad, forseti Írans, ávarpaði þjóð sína af frelsistorginu í Teheran. Þar sagði hann meðal annars að mjög mikilvægra tíðinda væri að vænta af afrekum Írana á sviði kjarnavopna, en gaf engar nánari upplýsingar um það.




