Kuldakastið í Evrópu hefur haft sín áhrif á aðgerðir á strandstað skemmtiferðaskipsins Costa Concordia. Mikill snjór á ítölsku eyjunni Giglio hefur hamlað björgunarmönnum í að dæla úr skipinu 2.300 tonnum af olíu sem eru í tönkum skipsins.
Snjór velda víðar usla því í höfuðborginni Róm liggja samgöngur svo gott sem niðri. Yfirvöld í borginni hafa varað fólk við að ferðast nema brýna nauðsyn beri til, og hermenn reyna að halda helstu vegum opnum. Notkun lítilla mótorhjóla og svonefndra vespa hefur verið bönnuð í borginni vegna ástandsins.




