Tekið á móti Suu Kyi sem rokkstjörnu

ERLENT  | 11. febrúar | 18:25 
Þúsundir þyrptust út á götu í Búrma til að taka á móti leiðtoga stjórnarandstöðunnar í Búrma, Aung San Suu Kyi. Erlendir fjölmiðlar greina frá að henni hafi verið tekið eins og rokkstjörnu, þvílíkt voru fagnaðarlætin.

Suu Kyi hefur verið á kosningaferðalagi en hún býður sig fram til þings í aukakosningum sem fram fara í Búrma 1. apríl nk. Ef hún nær kjöri verður það í fyrsta skipti sem hún fær sæti á þinginu. Bandamenn herforingjanna verða þó áfram með mikinn meirihluta á þinginu, hvernig sem aukakosningarnar fara.