Fréttaflutningur aðeins dropi í hafið

ERLENT  | 11. febrúar | 21:25 
Sýrlenskir flóttamenn segja að fréttaflutningur af ástandinu í landinu sé aðeins dropi í hafið, svo slæmt sé ástandið. Töluverður fjöldi af myndböndum hefur borist af ofbeldi hersins gegn almennum borgunum, en ekki hefur verið hægt að staðfesta að myndböndin séu raunsönn.

Fréttir frá Sýrlandi í dag herma að blóðbaðið í Homs haldi áfram en eins hafi það breiðst út til Aleppo þar sem um þrjátíu hafi fallið fyrir mönnum Assads forseta. Talið er að yfir 20 þúsund Sýrlendingar hafi flúið yfir til nágrannalanda. Í meðfylgjandi myndbandi ræðir Abu Fahed við Reuters. Hann minnist þriggja og hálfs árs sonar síns sem lést í átökunum.