Lík Houston flutt af hótelinu

FÓLKIÐ  | 12. febrúar | 10:55 
Mikill fjöldi fjölmiðla sat um Beverly Hills-hótelið þegar lík bandarísku söngkonunnar Whitney Houston var flutt þaðan rétt eftir miðnætti að staðartíma. Enn hefur ekki verið skorið úr um dánarorsökina en fregnir herma að lyfseðilsskyld lyf hafi fundist á herbergi söngkonunnar.

Houston átti að vera viðstödd skemmtun í gærkvöldi í tilefni af Grammy-verðlaunahátíðinni, þar sem Clive Davis var gestgjafi. Davis var sá sem uppgötvaði Houston á sínum tíma. Allt fór hins vegar á versta veg því söngkonan var úrskurðuð látin kl. 16.55 að staðartíma eftir að endurlífgunaraðgerðir reyndust árangurslausar.