Meðvitundarleysi í byrjun seinni hálfleiks

ÍÞRÓTTIR  | 18. febrúar | 21:00 
Ingi Þór Steinþórsson, þjálfari Snæfells, sagði fyrstu fimm mínúturnar í síðari hálfleik hafa farið með bikarúrslitaleikinn fyrir Snæfell en þá náði Njarðvík góðu forskoti sem Snæfell náði aldrei að vinna upp þrátt fyrir að munurinn væri reyndar ekki nema eitt stig á lokakafla leiksins.

Ingi sagðist jafnframt hafa verið mjög stoltur af sínum leikmönnum fyrir að gefast ekki upp heldur gera leikinn spennandi í síðasta leikhlutanum.

Njarðvík sigraði 84:77 og tryggði sér Powerade-bikar kvenna í körfuknattleik.