Petrúnella: Vinnusemin og hungrið réðu úrslitum

ÍÞRÓTTIR  | 18. febrúar | 21:10 
„Við höfðum fulla trú á því sem við vorum að gera,“ sagði Petrúnella Skúladóttir meðal annars við mbl.is að loknum úrslitaleiknum í Powerade-bikar kvenna í körfuknattleik í Laugardalshöll í dag.

Petrúnella skoraði 18 stig fyrir Njarðvík sem sigraði Snæfell 84:77 og Njarðvík varð þar með bikarmeistari í fyrsta skipti í kvennaflokki.