„Á ég ekki bara að hitta þig að ári?“

ÍÞRÓTTIR  | 18. febrúar | 21:30 
Svavar Birgisson hefur lengi verið í eldlínunni með Tindastóli í körfuboltanum og skilaði 14 stigum og 9 fráköstum í bikarúrslitaleiknum á móti Keflavík í Laugardalshöllinni í dag. Það dugði þó ekki til sigurs því Keflavík sigraði 97:95.

Svavar sagði að sér hefði liðið vel í þessum fyrsta bikarúrslitaleik félagsins og það hefði verið gaman að sjá allan þann fjölda fólks sem lagði leið sína í Höllina til að styðja Stólana í frumraun sinni.

„Vonandi á maður eftir að upplifa þetta aftur áður en maður hættir. Vonandi komumst við aftur að ári,“ sagði Svavar meðal annars við mbl.is að leiknum loknum.