Ellefu ára og stofnuðu lúðrasveit

INNLENT  | 21. febrúar | 14:26 
Fimm ellefu ára vinkonur af Seltjarnarnesi stofnuðu upp á sitt eindæmi sína eigin lúðrasveit, Bleika bandið, þrátt fyrir heldur dræmar undirtektar þeirra fullorðnu.

Fimm ellefu ára vinkonur af Seltjarnarnesi stofnuðu upp á sitt eindæmi sína eigin lúðrasveit, Bleika bandið, þrátt fyrir heldur dræmar undirtektar þeirra fullorðnu. Fyrir stuttu æfðu þær nokkur lög saman, héldu síðan með hljóðfæri sín út á Eiðistorg og spiluðu fyrir gesti og gangandi í þeim tilgangi að safna fyrir ferðalagi með Lúðrasveit Seltjarnarness.