Sprengidagur er misskilningur

INNLENT  | 21. febrúar | 15:20 
Í dag hafa landsmenn torgað ógrynni af saltkjöti, baunasúpu og soðnu grænmeti en rófusala er til að mynda aldrei jafnmikil og í kringum sprengidag. Árni Björnsson þjóðháttafræðingur segir orðið sprengidagur vera hálfgerðan misskilning en hann er flestum fróðari um söguna á bak við daginn.