Dominique Strauss-Kahn, fyrrverandi framkvæmdastjóri Alþjóðagjaldeyrissjóðsins, var í haldi lögreglu í frönsku borginni Lille í nótt vegna ásakana um að tengjast umfangsmiklum vændishring.
Í gær var hann var dæmdur í gæsluvarðhald í 48 klukkustundir.
Hann er einnig sakaður um að eiga aðild að fjármálamisferli, en talið er að vændiskonunum hafi verið greitt úr sjóðum fyrirtækja sem er ólöglegt í Frakklandi
Væntanlega mun liggja fyrir síðar í dag hvort Strauss-Kahn mun verða sleppt, ákærður og látinn laus gegn tryggingu eða hvort hann muni vera áfram í haldi lögreglu.
Verði hann fundinn sekur er hámarksrefsing 20 ár.
Rannsóknin beinist að því hvort honum hafi verið kunnugt um að konurnar sem hann umgekkst á hótelum, veitingastöðum og makaskiptaklúbbum í Washington, París og víða um Evrópu hafi verið vændiskonur, sem fengu greitt fyrir. Einnig er rannsakað hvort hann hafi vitað að konurnar fengu greitt fyrir úr sjóðum fyrirtækja.




