Íbúar borgarinnar Christchurch á Nýja-Sjálandi minnast þess í dag að ár er liðið frá jarðskjálftanum sem reið yfir borgina með þeim afleiðingum að 185 létu lífið og hluti borgarinnar lagðist í rúst.
Nöfn allra þeirra sem létust voru lesin við minningarathöfn sem haldin var í morgun. Haldin var tveggja mínútna þagnarstund þegar klukkan var 12.51 að staðartíma, en þá reið skjálftinn yfir í fyrra og 185 fiðrildum var sleppt lausum.
Meira en 6.500 slösuðust í skjálftanum, sem var 6,3 stig. Enn má finna eftirskjálfta í borginni og endurbygging stendur yfir.




