Óeirðir brutust út meðal sambadansara í Sao Paulo í Brasilíu, en þar stendur kjötkveðjuhátíðin nú sem hæst. Sambadansararnir höfðu háð harða keppni og voru dómarar við það að tilkynna úrslitin, þegar dansari nokkur sem sá fram á að lenda í einhverju af neðstu sætunum stökk á dómarana, reif af þeim einkunnaspjöldin og reif þau í tætlur.
Í kjölfarið hófust óeirðir, þar sem sambadansararnir og stuðningsmenn þeirra veltu um borðum og bekkjum og kveiktu í vögnum, sem nota átti í skrúðgöngu. Lögregla handtók nokkra, en gat ekki bjargað neinum einkunnaspjöldum og því liggur enn ekki fyrir hver vann í sambadanskeppninni.




