Vissu ekki af blaðamönnunum

ERLENT  | 22. febrúar | 11:25 
Sýrlensk stjórnvöld segjast ekki hafa haft vitneskju um að vestrænir blaðamenn væru komnir til borgarinnar Homs en tveir blaðamenn létust í sprengjuárás í borginni í morgun.

Sýrlensk stjórnvöld segjast ekki hafa haft vitneskju um að vestrænir blaðamenn væru komnir til borgarinnar Homs en tveir blaðamenn létust í sprengjuárás í borginni í morgun.

Bandaríska blaðakonan Marie Colvin, sem starfaði fyrir Sunday Times, lést í sprengingunni sem varð fyrir utan hús sem fjölmiðlamenn höfðu safnast saman í. Einnig lést franski ljósmyndarinn Remi Ochlik.

Ráðherra upplýsingamála í Sýrlandi, Adnan Mahmud, hvetur alla blaðamenn sem hafa komið „ólöglega“ til landsins að láta vita af sér.

Bandaríska utanríkisráðuneytið segir fall blaðamannanna enn og aftur sýna fram á  miskunnarleysi sýrlenska stjórnvalda.