Það hefur ekki alltaf tíðkast að krakkar klæði sig í búninga, gangi á milli fyrirtækja, syngi og fái sælgæti að launum. Áður fyrr var vinsælt að hengja öskupoka á fólk en það er séríslenskur siður þar sem það þótti sóðalegt að skvetta ösku á fólk hér á landi, því var brugðið á það ráð að koma henni fyrir í pokum.
Árni Björnsson þjóðháttafræðingur ræddi við MBL Sjónvarp um hefðirnar á öskudag. Að hans sögn var kötturinn upphaflega sleginn úr tunnunni á bolludag og í stað sælgætis voru dauðir hrafnar í tunnunni í gamla daga.




