Að minnsta kosti 49 létust í lestarslysi í úthverfi höfuðborgar Argentínu, Buenos Aires, í dag. Að minnsta kosti 550 slösuðust er lestin rakst á hlið á lestarstöð, samkvæmt upplýsingum frá lögreglu.
Vitni segja að lestin hafi hafnað á hliðinu eftir að hemlar hennar biluðu er lestin ók inn á lestarstöðina.




