Vopnaður maður skaut fjóra til bana í heilsulind í úthverfi bandarísku borgarinnar Atlanta í gærkvöldi. Meðal fórnarlamba hans voru tvær systur hans. Hann skaut einnig eiginmenn þeirra til bana áður en hann framdi sjálfsvíg.
Manninum hafði verið vísað út úr heilsulindinni á mánudag. Í öryggiseftirlistmyndavélum sést þegar hann kemur í heilsulindina og lendir í útistöðum við annan mann. Í kjölfarið dró hann upp byssu og skaut hinn manninn.
Vinnur lögregla að rannsókn málsins en að sögn lögreglu hafði árásarmaðurinn ónáðað gesti í heilsulindinni daginn áður.




