Bragi: Sorglegt baráttuleysi

ÍÞRÓTTIR  | 22. febrúar | 23:40 
Bragi Magnússon, þjálfari Fjölnis, var vonsvikinn með sína leikmenn í tapleiknum gegn Val í Iceland Express-deild kvenna í körfuknattleik í kvöld.

Bragi Magnússon, þjálfari Fjölnis, var vonsvikinn með sína leikmenn í tapleiknum gegn Val í Iceland Express-deild kvenna í körfuknattleik í kvöld. 

Valur vann 79:67 og Bragi sagði leik Fjölnis hafa einkennst af andleysi og baráttuleysi.

„Mér fannst þetta vera tvö jöfn lið á vellinum og þetta var bara spurning um hvort liðið vildi sigurinn meira. Þær það greinilega meira en mínar stelpur sem er sorglegt,“ sagði Bragi meðal annars við mbl.is í kvöld.