Tugir mexíkóskra fangavarða voru handteknir í gær, grunaðir um að hafa aðstoðað dæmda meðlimi eiturlyfjagengja við að flýja úr fangelsi síðastliðna helgi.
Þá braust eldur út í fangelsinu í Monterrey, sem er í norðurhluta Mexíkó og við það skapaðist mikil ringulreið og tugir fanga flýðu úr fangelsinu. Meira en 40 fangar létu lífið, allir voru þeir úr Gulf eiturlyfjahringnum, en þeir sem flýðu voru allir úr Zetas hringnum.
Blóðugt stríð hefur verið á milli þessara tveggja eiturlyfjahringja undanfarin ár.




