Talinn hafa skotið bekkjarsystur sína

ERLENT  | 23. febrúar | 4:55 
Níu ára gamall bandarískur drengur er í haldi lögreglu vegna gruns um að hafa skotið úr byssu á átta ára gamla bekkjarsystur sína.

Níu ára gamall bandarískur drengur er í haldi lögreglu vegna gruns um að hafa skotið úr byssu á átta ára gamla bekkjarsystur sína.

Stúlkan særðist nokkuð og var flutt með þyrlu á sjúkrahús í Seattle. Lögreglan í  borginni Bremerton í Washington ríki tók piltinn í sína vörslu, en skotið var á stúlkuna í skólastofu barnanna í Armin Jahr grunnskólanum í Bremerton.