Átta létust og þrjátíu særðust þegar sprengja sprakk í umferðamiðstöð í Peshawar í norðvesturhluta Pakistans. Enginn hefur lýst yfir ábyrgð á árásinni.
Sprengingin varð á háannatíma. Hún var nokkuð öflug og olli talsverðu tjóni á nálægum farartækjum. Talið er líklegt að tala látinna muni fara hækkandi en minnst fjórir eru alvarlega slasaðir.
Tölur um fjölda látinna og særðra eru nokkuð á reiki, þannig segir Reuters fréttastofan að tólf hafi látist og 22 slasast.
Að sögn lögreglunnar var um að ræða 45 kg sprengju sem hafði verið komið fyrir í bíl við umferðamiðstöðina. Tveir menn hafa verið yfirheyrðir.




