Viktoría, krónprinsessa Svía, eignaðist dóttur í morgun en er nú komin heim til sín. Hér sést hún yfirgefa spítalann. Viktoría og eiginmaður hennar, Daníel Westling, geisluðu af gleði þegar þau fóru heim af spítalanum með frumburð sinn.
Stúlkan var 51 sm og 3,3 kíló þegar hún fæddist.
„Þetta var mikið álag, það getur jú alltaf eitthvað farið úrskeiðis. En þetta gekk vel,“ sagði faðirinn nýbakaði í samtali við vefsíðu sænska dagblaðsins Dagens Nyheter.
Hann sagði fjölskylduna ætla að taka það rólega á næstunni og bað fjölmiðla um að taka tillit til þess.
Viktoría kom á sjúkrahúsið skömmu fyrir klukkan eitt í nótt í fylgd sænsku öryggislögreglunnar, Säpo. Hún er á einkastofu á sjúkrahúsinu.




