Á dögunum var opnuð sýningin Origami: brot í brot, í Gerðubergi. Þar má sjá origami-verk eftir hjónin Dave og Assiu Brill en þau halda jafnframt námskeið í listinni um næstu helgi. Grunnreglur listformsins, sem upprunalega er frá Japan, eru þær að aðeins má brjóta pappírinn en hvorki klippa né líma.