Miðaldabókmenntir í þrívídd

TÆKNI  | 5. mars | 8:45 
Ómetanlegar miðaldabókmenntir, sem vanalega eru geymdar í glerkössum, er nú hægt að lesa í þrívídd þökk sé nýju tölvukerfi sem kynnt er á CeBIT tæknisýningunni í Hannover.

Ómetanlegar miðaldabókmenntir, sem vanalega eru geymdar í glerkössum, er nú hægt að lesa í þrívídd þökk sé nýju tölvukerfi sem kynnt er á CeBIT tæknisýningunni í Hannover.

Um er að ræða gagnvirka bókaleitarvél sem þýska stofnunin Fraunhofer Institute hefur hannað. Verkefnið er unnið í samstarfi við bókasafnið í Bæjaralandi og með þessu verður hægt að nálgast bækur sem almenningur hefur ekki haft færi á að skoða. Elsa bókin sem nú er búið að koma á stafrænt form er að minnsta kosti þúsund ára gömul.

Það var Angela Merkel, kanslari Þýskalands, sem setti CeBIT sýninguna í gær en sýningin er sú stærsta í heimi. Henni lýkur þann 9. mars nk.