Íbúar í Úlfarsárdal eru orðnir þreyttir á aðgerðaleysi borgaryfirvalda í hverfinu þar sem götulýsingu er víða ábótavant og erfiðlega gengur að klára gönguleiðir. Kristinn Steinn Traustason formaður íbúasamtaka í hverfinu segir þetta koma niður á öryggi gangandi vegfarenda sem séu yfirleitt börn.
Töluvert er af auðum lóðum og hálfbyggðum húsum í hverfinu sem Kristinn segir að séu í eigu bankanna og borgarinnar en þar sem margar byggingar eru ókláraðar hefur borgin frestað því að fullklára frágang í hverfinu. Hann gagnrýnir einnig þessa eigendur hálfkláraðra lóða sem sumir hverjir hafi skilið eftir tæki á borð stóra byggingarkrana óhreyfð um nokkurra ára skeið.



