Auknar líkur eru á að þingið í Marokkó samþykki lagabreytingu sem miðar að því að auka rétt kvenna. Hingað til hafa nauðgarar getað sloppið við fangelsisdóm með því að kvænast fórnarlambi sínu.
Almenningi í Marokkó var mjög brugðið í mars í fyrra þegar Amina Filali, 16 ára, framdi sjálfsvíg eftir að hún var þvinguð til að giftast manninum sem nauðgaði henni. Hann er enn laus enda kvæntist hann fórnarlambi sínu. En nú ári síðar er stefnt að breytingum á hegningarlögum konungsríkisins og verður greinin um að nauðgarar geti sloppið við fangelsisdóm með hjónabandi felld úr gildi.
Amina Filali lést eftir að hún innbyrti rottueitur þann 10. mars í fyrra. Hún kom frá smábænum Larache. Á fátækum og dreifbýlum svæðum í Marokkó ríkir mikil íhaldssemi og er sú skoðun ríkjandi að konur eigi ekki að missa meydóminn fyrr en á brúðkaupsnóttina. Stundi ógift kona kynlíf hefur hún kallað skömm yfir sig og fjölskyldu sína, jafnvel þótt henni hafi verið nauðgað.
Í dag er mun algengara að börn séu gefin í hjónaband í Marokkó en áður. Árið 2010 voru 35 þúsund börn látin ganga í hjónaband í landinu miðað við 30 þúsund tveimur árum áður. Þvinguð hjónabönd barna hafa verið bönnuð samkvæmt lögum í Marokkó frá árinu 2004 en svo virðist sem mjög sé horft fram hjá lögunum af dómurum landsins.
Segir þingmaður Sósíalista að í strjálbýlum hlutum landsins sé ekki óþekkt að stúlkubörn, allt niður í þrettán ára, gangi í hjónaband og að yfir 10% átján ára stúlkna í Marokkó séu giftar fyrir átján ára aldur.
Unglingsstúlka í borginni Meknes segir í samtali við AFP fréttastofuna að hún hafi verið látin ganga í hjónaband er hún var þrettán ára gömul en pappírar hafi verið falsaðir.
„Eftir að hafa verið lyfjuð og pyntuð í ár afneitaði eiginmaður minn mér,“ segir hún.




