Samþykkti barsmíðar - ekki sýruárás

ERLENT  | 7. mars | 16:03 
Ballettdansarinn sem er ákærður um að hafa skipulagt sýruárás á listrænan stjórnanda Bolshoi ballettsins, segist ekki hafa ætlað láta skaða stjórnandann með sýru.

Ballettdansarinn sem er ákærður um að hafa skipulagt sýruárás á listrænan stjórnanda Bolshoi ballettsins, segist ekki hafa ætlað láta skaða stjórnandann með sýru.

Sólódansarinn Pavel Dmitritjenko er ákærður fyrir að hafa staðið að baki árásinni. Hann kom fyrir héraðsdómstól í dag og var úrskurðaður í áframhaldandi gæsluvarðhald. Tveir aðrir menn sem aðstoðuðu við árásina mættu einnig fyrir dóminn. Þeir hafa allir játað aðild sína að árásinni.

Stjórnandinn sem fyrir árásinni varð hlaut augnskaða og er nú í endurhæfingu í Þýskalandi.

Árásin er sögð hafa verið vegna átaka innan dansflokksins og gríðarlegrar samkeppni sem þar ríkir.

Dmitritjenko er sakaður um að hafa skipulagt árásina, Yuri Zarutsky fyrir að hafa framkvæmt hana og Andrei Lipatov fyrir að hafa ekið flóttabílnum.

 Dmitritjenko segist hafa sagt Zarutsky að slæmir hlutir væru í gangi innan Bolshoi-ballettsins. Hann segir að Zarutsky hafi brugðist við með því að bjóðast til að berja stjórnandann. „Ég samþykkti það en það er allt sem ég játa að hafa gert. Ég skipaði honum ekki að skvetta sýru á Filin.“

Dmitritjenko hefur starfað með Bolshoi ballettnum frá árinu 2002.