Ísraelsher hætti við að gera loftárás á hús í Jabaliya flóttamannabúðunum á Gasa eftir að hundruð Palestínumanna mynduðu skjöld fyrir utan húsið. Mohammedweil Baroud, sem er einn leiðtoga palestínskra uppreisnarmanna, fékk viðvörun frá Ísraelsher um að yfirgefa heimili sitt. Í stað þess að framfylgja skipun hersins hljóp hann í næstu mosku og fékk þar nágranna til að aðstoða við að verja húsið.