Konum dettur oft ekki í hug að forritun sé eitthvað fyrir þær því við erum enn dálítið föst í þeim staðalímyndum að góðir forritarar búi bara í kjallaranum hjá foreldrum sínum og borði pítsur alla daga. Þetta er aftur á móti kolrangt og konur hafa alla burði til að verða góðir forritarar, segir Berglind Rós Guðmundsdóttir hjá CCP.