Þegar Katrínu Atladóttur, forritunarfræðingi hjá CCP, var fyrst bent á að sækja um vinnu hjá CCP árið 2007 segist hún ekki hafa þorað það þar sem hún taldi sig ekki vera jafnhæf og þeir forritarar sem unnu hjá fyrirtækinu á þeim tíma. Seinna bauðst henni starf hjá fyrirtækinu og tók því og hefur síðustu fimm ár verið í forritunarteymi EVE online-leiksins.