Lið Menntaskólans við Sund og Flensborgarskólans í Hafnarfirði mætast í úrslitum MORFÍs sem fram fara í Háskólabíói annað kvöld. Monitor þótti ekki næg ólga á milli liðanna tveggja og skoraði því á þau í einfalda rapp-battl-keppni til að sýna hvor skólinn hefði í raun munninn fyrir neðan nefið.