Það hefur verið líf og fjör á Secret Solstice tónlistarhátíðinni í Laugardalnum um helgina en þetta er í fyrsta skiptið sem hátíðin er haldin. Tónleikagestir skemmtu sér konunglega og virtust allir vera á því að sveitin Skítamórall, sem kemur því miður ekki fram á hátíðinni, væri hápunktur íslenskrar tónlistarsögu.