Kynslóðir sameinast á Seltjarnarnesi í sumar þar sem ungmenni á framhaldsskólaaldri kenna eldri borgurum bæjarins undirstöðuatriði í tölvunotkun. Kennt er í tvær klukkustundir á dag í tvær vikur í Valhúsaskóla og eru bæði nemendurnir sem og ungu kennararnir gríðarlega ánægðir með samstarfið.