John Kerry, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, vinnur nú hörðum höndum að því að binda enda á blóðbaðið á Gaza-svæðinu. Að sögn embættismanns í bandaríska utanríkisráðuneytinu standa vonir Kerrys til þess að bæði ísraelsk stjórnvöld og samtökin Hamas samþykki fleiri tímabundin vopnahlé.