Það var mikil stemning í Grafarholtinu í morgun þegar leikskólinn Geislabaugur fagnaði 10 ára afmæli sínu. Pollapönkararnir mættu og fluttu nokkra slagara í tilefni dagsins auk þess sem sjálfur borgarstjórinn var á svæðinu. Það var ekki annað að sjá en að krakkarnir kynnu vel að meta herlegheitin.