Ráðherrar Evrópusambandsins samþykktu á neyðarfundi í dag að veita fjárstuðning til vopnavæðingar hersveita íraskra Kúrda, sem berjast gegn uppgangi vígamanna Ríkis íslams. Markmiðið er að koma þannig í veg fyrir það sem Þjóðverjar kalla „slátrun almennra borgara“.