Tíu manns, sex 4m langar stangir, nokkur vörubretti og bolti er allt sem þarf til að hægt sé að keppa í mennskum „fússball“, stækkaðri útgáfu af borðleiknum vinsæla. Starfsmenn Morgunblaðsins og mbl.is héldu mót í leiknum á dögunum þar sem ekkert var gefið eftir eins og sést í þessu myndskeiði.