Þrátt fyrir að talsvert öflugt gos hafi farið af stað í Holuhrauni, hefur það haft lítil áhrif á heildarmyndina við Bárðarbungu og kvikuganginn sem þar hefur myndast. Þetta segir Páll Einarsson, jarðeðlisfræðingur. Blaðamaður mbl.is var við gosið í morgun og náði mögnuðum myndum af hraunflæðinu.