mbl | sjónvarp

Keppt um bestu portrett-ljósmyndina

FÓLKIÐ  | 15. mars | 12:48 
Í tengslum við Ljósmyndakeppni Íslands efnir mbl.is á næstu vikum til nokkurra ljósmyndakeppna á vefnum. Þemað fyrstu keppninnar er portrett.

Keppni er hafin á mbl.is um bestu portrett-ljósmyndina og stendur fram til morguns 27. mars.

Í tengslum við Ljósmyndakeppni Íslands efnir mbl.is á næstu vikum til nokkurra ljósmyndakeppna á vefnum. Fyrsta keppnin er helguð þema fyrsta þáttar í samnefndri sjónvarpsþáttaröð á SkjáEinum. Þemað er portrett og Hallgerður Hallgrímsdóttir dómari í Ljósmyndakeppni Íslands lýsir stuttlega í meðfylgjandi myndskeiði hvað felst í portrett-mynd.

Þátttaka er öllum opin. Vinningsmynd í hverri þemakeppni verður birt í sjónvarpsþættinum auk þess sem sigurvegari hlýtur Canon myndavél að launum.

Síða ljósmyndakeppninnar á mbl.is

 

Loading