Tækni & vísindi
| mbl
| 14.11.2005
| 13:42
Vefmiðlun flytur ekki vefþjóna úr landi
Vefmiðlun ehf, sem rekur nokkur af vefsvæðum landsins, hefur
ákveðið að halda áfram öllum netþjónum sínum hérlendis, þrátt fyrir flótta
tæknifyrirtækja með netþjóna sína til útlanda að undanförnu. Það er mat
stjórnar félagsins að standa beri vörð um þekkingu og færni hérlendis og
gefa íslenskum netverjum áfram þann kost að skoða íslenskar vefsíður án
sérstaks gjalds vegna niðurhald frá útlöndum. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá Vefmiðlun.
Stjórn félagsins ítrekar hins vegar andstöðu sína við íhlutun ríkisins í rekstri sæstrengja og annarra gagnaveitna. Afskipti ríkisins af fjármögnun og rekstri Farice sæstrengsins hefur haft ráðandi áhrif á mikilvægar ákvarðanir sem hafa leitt til vandræðagangs fyrirtækisins í Skotlandi. Illa ígrunduð sparnaðarsjónarmið við lagningu landlínunnar hafa verið helsti orsakavaldur sambandsslita að undanförnu.
Stjórn Vefmiðlunar hvetur því þau fyrirtæki sem sérhæfa sig í samtengingu stórra netkerfa að kanna hvort ekki megi svara augljósri eftirspurn markaðarins eftir stöðugum og góðum tengingum við umheiminn, að því er fram kemur í fréttatilkynningu.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin
-
Fréttaflutningur aðeins dropi í hafið
-
Tekið á móti Suu Kyi sem rokkstjörnu
-
Veður hamlar aðgerðum á strandstað
-
Íranar fagna byltingarafmæli
-
Rómarborg snæviþakin
-
Ofbeldið í Sýrlandi eykst
-
Adele í viðtali við 60 mínútur
-
Ingvar: Við verðum að vinna síðustu þrjá
VANTAR Á SKRÁ.
Vantar bíla á söluskrá Mikil eftirspurn! Lágmarkssöl...
Aquaflex grindarbotnsþjálfi
Hvað gerist ef þú hlærð of mikið, hnerrar óvænt, beygir þig fram eða ferð í leik...
Viftur -mikið úrval -tilboð á 12V viftum
Fjölbreytt úrval af viftum. Tilboð í febrúar á 12 volta bílaviftum í febrúar. ...
Sjónvarp Loewe frá Ormsson hf.
Til sölu, 7 ára, gott, með mynd í mynd sem þýðir hægt er að horfa á tvær rásir í...
























