Niðurstöður einræktunarrannsókna suður-kóresks vísindamanns voru falsaðar
Hwang Woo-suk hefur beðist opinberlega afsökunar og mun segja af sér sem prófessor við háskólann í Seoul. AP
Hwang hefur beðist afsökunar og tilkynnt að hann muni segja upp prófessorsstöðu sinni við háskólann. „Ég biðst innilegrar afsökunar fyrir að hafa valdið þessu hneyksli,“ sagði prófessorinn eftir að sérfræðingarnir við háskólann höfðu birt niðurstöður sínar. „Sem tákn um afsökunarbeiðni mína þá mun ég hætta sem prófessor við háskólann í Seoul.“
Hneykslismálið hefur vakið mikla athygli í Suður-Kóreu, en þar er litið á prófessorinn sem þjóðhetju fyrir starf sitt á sviði einræktunar.
Frá árinu 2002 hefur hann fengið styrki upp á 40 milljón dala, sem nemur um 2,5 milljarði kr., frá vísinda- og tæknimálaráðuneytinu.
Fréttavefur BBC greindi frá þessu.
-
Annan segir morðin hryllileg
-
Bretar æfa sig fyrir demantsafmælið
-
Segjast ekki bera ábyrgð
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú























